Borgun hefur innleitt samskiptamiðilinn Workplace. Á þessari síðu er að finna allar upplýsingar um Workplace sem vonandi gagnast þér í þinni innleiðingu.
Hvað er Workplace?
Workplace er samskiptamiðill fyrir vinnustaði. Workplace byggir á sömu eiginleikum og viðmóti og Facebook, enda er hugbúnaðurinn þróaður af sama aðila. Workplace-lausnin er sérsniðin fyrir umhverfi fyrirtækja og stofnana.